Auður - hagfræði fyrir íslenska þjóð

Friday
Jun212013

Auður - Hagfræði fyrir íslenska þjóð

Útgáfufélagið Guðrún í samstarfi við Stofnun um fjármálalæsi gefur út kennslubókina „Auður – hagfræði fyrir íslenska þjóð“ eftir hagfræðinginn Ingu Láru Gylfadóttur. Bókin lýsir á aðgengilegan hátt helstu hugtökum í hagfræði, hvernig þau eru notuð og kemur jafnframt inn á sögulegt samhengi hagfræðikenninga. Bókin er skrifuð með það í huga að gera Íslendingum kleift að átta sig á því hvernig hagkerfið virkar og öðlast skilning á þeim hugtökum sem heyrast daglega í þjóðmálaumræðunni. Að loknum lestri bókarinnar gera lesendur sér grein fyrir þeim kröftum sem eru að verki í hagkerfinu og hvernig þeir hafa áhrif á efnahag og aðstæður okkar allra. Sú vitneskja er nauðsynleg forsendar allra ákvarðana í fjármálum, hvort sem þær eru stórar eða smáar.

Bokin er 120 blaðsíður og skiptist í eftirfarandi kafla
Kafli 1 Hagfræði
Kafli 2 Framleiðsla og sérhæfing
Kafli 3 Vöru- og viðskipti
Kafli 4 Verð Eftirspurn og framboð
Kafli 5 Verðbólga
Kafli 6 Bankar
Kafli 7 Vextir og verðtrygging
Kafli 8 Hringrás og vöxtur
Kafli 9 Hið opinbera
Kafli 10 Milliríkjaviðskipti
Kafli 11 Hagfræðin í tímans rás
Í lok bókarinnar er að finna ítarlegar orðskýringar og atriðaorðaskrá.

Hér má sjá sýnishorn úr bókinni:

Pdf 17 bls. (ath. 14MB)

Pdf 5 bls. (ath 4MB)